Óli benti mér á það í dag að ég væri orðin lélegasti bloggari í Evrópu, ég er hrædd um að ég verði að vera sammála honum þar. En ég er bara að hugsa um ykkar hag elskurnar mínar. Málið er það að ég geri ekkert nema borða, sofa, gefa brjóst og dást að syni okkar. Ég gæti skrifað heila bók hérna um dásemdina sem er litli drengurinn en ég vil helst ekki gera ykkur það. Betra að geyma svoleiðis fyrir babybloggið. En eitt hefur nú á daga okkar drifið, við skelltum okkur í 30tugs afmælið hennar Soffíu á laugardaginn og tókum prinsinn með okkur. Það var hressandi að komast aðeins út og hitta fólk og lillinn svaf bara allan tímann og kippti sér lítið upp við það að vera staddur í gleðskap, alger draumadrengur. Svo er bara slökun fram að næstu helgi en þá verður skírn á Skaganum en við ætlum að skíra heima hjá tengdamömmu og úti á palli meira að segja ef að veður leyfir. Presturinn sem skírir hann er enginn annar Eðvarð Ingólfsson sem er þekktur fyrir bækur sínar 15 ára á föstu og 16 ára í sambúð, já hver man ekki eftir þeim???
Við pöntuðum skírnarkökuna í dag og bíðum bara spennt eftir sunnudeginum. Annars hef ég lítið að segja elskurnar, er bara í babyvímu og nýt þess í BOTN!!!
Set með hérna 2 myndir af litlu elskunni, bara af því að ég stenst það ekki!!!