Hr Ulrich
Helgi Júlíus
Alda Lilja
Beta
Frú Sigríður
Erla
Hafrún
Helga
Hildur
Karen Inga
Lilja Sif
Linda
Lísa
María Sif
Massinn
MH túttur
Orri
Pétur Örn
Ragga Dan
Sara Natasha
Soffía
Thelma
Unnur
Vesturfarar
Amnesty
Skólinn
Blogger
Unifem
Unicef
Mogginn
ABC barnahjálp
|
Á laugardaginn var útskriftarveisla á Skaganum en hann Atli mágur minn var að útskrifast, ótrúlega gaman og að venju sjúklega góður matur. Svo renndum við í bæinn og ég fór í afmælispartý hjá honum Sævari sem endaði í ofurölvun og Singstar 80´s! Eftir á fórum við í bæinn og þar sem að Ragga og Sævar eru svo miklar elítur hahaha þá fengum við inn á gestalista á Nasa í Eurovision partý Páls Óskars. Það vill fylgja annarlegu ástandi að manni finnst góð hugmynd að fara að tala við Pál Óskar og segja honum að hann sé flottur gaur. En ég fékk fingurkoss að launum :) svo að það var bara fín hugmynd.
Sunnudagurinn fór í almenna vanlíðan.
Ég er strax farin að hlakka til næstu helgar, en hún byrjar að þessu sinni á morgun, uppstigningardagur á fimmtudag og frí í vinnunni sem er æði. Ég er að vona að Pétur og Matti séu að spila á uppstigningardag því að þá get farið að sjá þá á fimmtudag, Nópí á föstudag og líklegast laugardag líka á Skaganum sem er gleði.
NOOOOOOOOOOOOO!
Ég var að vinna frameftir í gærkvöldi í góða veðrinu og var fyrir vikið ekkert að gera, ég var bara ein að dingla mér og var það bara ósköp notalegt. Nema ég drakk yfir mig af ískaffi og var orðin ansi hyper undir lokin. En það var samt bara gaman því að ég var með eina 4 ára prinsessu í pössun í móttökunni og það er ekkert verra að vera pínu hyper þegar maður vill skemmta litlu barni. Hún lá amk í kasti þegar ég bauð henni endalaust eitthvað skrítið að drekka og borða (sápu eða plastpoka) og sagði henni svo að ég væri búin að borða mömmu hennar. Way to go Karen, svona á að vera :) Mér finnst svona alvöru prinsessu stelpur alger krútt, hún var í bleiku tutu ballet pilsi og strigaskóm með disney prinsessunum og með fullt af bleikum spennum í hárinu. ALger rúsína! Mig langaði bara að bíta í kinnarnar á henni hún var svo mikið krúsí! Afhverju á ég ekki bleikt tutupils