Eftir að ég hóf störf hér hjá embættinu hef ég haft sífellt meiri áhuga á lögfræði og lögum. Það er eitthvað sem mér finnst heillandi við það þegar lögfræðingarnir sem vinna með mér þylju upp einhverja lagabálka og útkljá þar með hin ýmsu ágreiningsmál. Ólíkt því sem ég hafði alltaf haldið þá eru lögin ekki spurning um svart og hvítt heldur eru mörg hver þeirra á gráu svæði og getur það verið undir lögfræðingnum komið hvernig hann túlkar þau. Svo er mér að minnsta kosti sagt :D Ef ég væri að byrja í háskólanámi núna þá myndi ég örugglega smella mér í lögfræðina, en hver veit það er víst aldrei of seint að byrja.
En ástæðan fyrir því að ég er að tala um lög hérna er vegna þess að mörg þeirra eru frekar furðuleg. Lög sem hafa verið sett fyrir Guð veit hvað löngu síðan og eru meira en lítið útrunnin og gamaldags. Ég skrifaði heilmikið um það í B.A ritgerðinni minni hversu mikil tímaskekkja það er að dæma í heimilisofbeldis málum út frá lögum sem voru sett 1940 og eiga í raun aðeins við um ofbeldi á milli tveggja karlmanna utandyra. Ekki ofbeldi karlmanns gegn konu inná heimili þeirra.
Ég bíð spennt eftir að þessu verði breytt!!
Sum þeirra laga sem enn eru í gildi eru samt bara spaugileg eins og mátti sjá inn á mbl.is í dag þar sem greint var frá lögum sem enn eru í gildi ég Bretlandi og er drepfyndin.
Sem dæmi þá er bannað með lögum að deyja í þinghúsinu (spurning hver refsingin er Life in prison perhaps), það jafngildir föðurlandssvikum að snúa frímerki með mynd af meðlimi bresku konungsfjölskyldunnar á hvolf og það sem mér fannst best af öllu ófrískar konur mega kasta af sér vatni hvar sem er, þar á meðal í hjálm lögreglumanns!!!! Það væri gaman að fara einhvern tímann með hóp af óléttum konum til London til að nýta sér þessi skemmtilegu lög. Aumingja Bobby-arnir hlandblautir á hárinu :þ
Það má örugglega finna einhver svona skrítin lög á Íslandi og ég auglýsi hér með eftir upplýsingum um svoleiðis frá einhverjum sem er lögfróðari en ég ;)
Hand over that helmet mister!!!!